Þessi orkudrykkur er án gervilitarefna eða gervibragðefna og hann er því trausts þíns verður. Inniheldur einnig pantóþensýru sem stuðlar að eðlilegri andlegri frammistöðu. Finndu frískandi áhrifin og njóttu afgerandi og hressandi bragðsins af greipávöxtum. Drekktu LiftOff® Max úr H24 úrvalinu fyrir áreynslu eða hvenær sem þú þarft að koma þér aftur í gírinn.
Helstu kostir
- 180 mg koffín** í skammti
- Inniheldur B6-, B12- og C-vítamín sem stuðla að því að draga úr þreytu og lúa
- Inniheldur pantóþensýru sem stuðlar að eðlilegri andlegri frammistöðu
- Vottun frá Informed Sport
- Án sykurs
- Engin gervilitarefni eða gervibragðefni
- Afgerandi og hressandi greipbragð
- Sætuefni af náttúrulegum uppruna úr stevíulaufum
- Afgreitt í 10 stakskammta smápökkum sem frábært er að taka með sér í erli dagsins
Notkun
Til að ná sem bestum árangri mælum við með að drekka 1 smápakka á dag, leystan upp í 250 ml af vatni, annaðhvort fyrir áreynslu eða hvenær sem þú þarft að koma þér aftur í gírinn. Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.