Product page

0

High Protein Iced Coffee Mocha

011K
kr 9.700
Á lager
1
Vörulýsing

Fyrir alla þá sem unna kaffi, eru framsæknir, stefna markvisst að draumum sínum og eru opnir fyrir nýjum tækifærum: hér er komin vara fyrir ykkur!

Erfitt getur verið að finna heilnæmari gerðir af ískaffi, sem er ekki uppfullt af sykri, fitu og hitaeiningum, en bragðast samt frábærlega.

Við tókum tvö innihaldsefni sem við þekkjum öll og kunnum vel að meta – prótein og kaffi – og blönduðum þeim saman í drykk sem er í senn ljúffengur og hressandi! Hvort sem þú ert á þönum í erli dagsins, eða vantar bara frískandi koffínskot, skalt þú seilast í glas af próteinríka ískaffinu okkar!

Þessi úrvalsblanda sameinar 100% Robusta espressó kaffibaunir og 15 g af mysupróteini sem gefa einstakt og afgerandi bragð án þess að ógna næringarmarkmiðunum.

Drykkurinn er án viðbætts sykurs, laus við litar- eða rotvarnarefni og með aðeins 80 kkal í skammti.
Bættu köldu vatni og klökum út í duftið og njóttu svo!

Vista þessa vöru
Share by: