Þær eru hentugt góðgæti eftir áreynslu með 21 grammi af próteini í hverri stöng. Þessar próteinstangir fást með ljúffengu bragði af dökku súkkulaði eða smákökudeigsbragði, þær eru lausar við gervibragðefni og gervilitarefni og henta grænmetisætum.
Við viljum tryggja þér næringu sem hjálpar þér að ná markmiðunum, hvort sem þau eru stór eða smá. Borðaðu H24 Achieve próteinstangirnar einu sinni á dag, milli mála eða eftir áreynslu.
Helstu kostir
- 21 g af próteini í stöng
- Lítið sykurinnihald
- Vottun frá Informed Sport
- Engin gervilitarefni eða gervibragðefni
- Hentar grænmetisætum
Notkun
Til neyslu einu sinni á dag milli mála eða eftir áreynslu. Notið þessa vöru sem hluta af vel samsettu og fjölbreyttu mataræði og heilnæmum og virkum lífsstíl.